Samstarfsverkefni Miðstöðvar útivistar og útináms, Skíðasvæðanna í borginni og tveggja grunnskóla í Reykjavík fór vel af stað. Tekið var á móti 2.bekk í Breiðholtsskóla í tveimur hópum. Markmið dagsins var að prufa skíði. Dagurinn var frábær í alla staði. Góð brekka, frábært verður og stórkostlegir krakkar. Nánast allir voru að fara á skíði í fyrsta skipti, en í lok dags voru allir farnir að taka lyftuna og renna sér niður. Næsta mánudag kemur svo 2.bekkur Vættarskóla í heimsókn á skíðasvæðið.
Verkefnið er tilraunaverkefni á skóla-og frístundasviði í umsjón Miðstöðvar útivistar og útináms, Gufunesbæ.