Vetrarleyfi grunnskólanna eru framundan, (19. 20. og 23. október n.k). Í tilefni af því verður dagskrá á vegum frístundamiðstöðvar Gufunesbæjar fimmtudaginn 19.október. Dagskráin fer fram í og við Hlöðuna í Gufunesbæ. Einnig verður Gufunesbær í samstarfi við sundlaug Grafarvogs, en sundlaugin verður með frítt inn á meðan dagskrá Gufunesbæjar er í gangi þar. Hlökkum til að sjá ykkur kíkja við og taka þátt í fjölbreyttri dagskrá á fimmtudeginum.
Hér fyrir neðan má sjá dagskrána:
Fimmtudaginn 19. október
kl. 10:30 – 11:00 Gunnar Helgason rithöfundur verður með upplestur
kl. 11:00 – 12:00 Folf pútmót hjá Gufunesbæ
kl. 11:00 – 12:00 Ratleikur hjá Gufunesbæ
kl. 11:00 – 13:00 Kolun greina / kolamálun í lundinum
kl. 11:00 – 13:00 Petanque bak við Hlöðuna
kl. 11:00 – 13:30 Hveitiboltasmiðja í Hlöðunni
kl. 11:00 – 13:30 Spilasmiðja í Hlöðunni
kl. 11:00 – 13:30 Skylmósmiðja (larp) hjá Hlöðunni
kl. 11:00 – 14:00 Klifur í turninum
kl. 11:00 – 14:00 Útieldun í lundinum
kl. 12:00 – 13:00 Tálgun í lundinum
kl.14:00 – 15:00 Bingó í Hlöðunni
kl. 15:00 – 17:00 Sundlaugarfjör í Grafarvogslaug
* frítt inn í alla dagskrá
Hér má nálgast auglýsingu vetrarleyfisins sem pdf