DANSKEPPNI SAMFÉS fer fram föstudaginn 2. febrúar í Félagsheimili Seltjarnarness.
Danskeppni Samfés er keppni á milli félagsmiðstöðva og er markmiðið að hvetja ungt fólk til þess að koma fram á þessum viðburði með sinn eigin dansstíl. Keppt verður í einstaklings- og hópakeppni unglinga á aldrinum 13-16 ára (8.-10. bekkur). Keppendur sýna frumsaminn dans og sjá alfarið um alla þá þætti sem snúa að því að sýna opinberlega fullbúið dansatriði. Hér er átt við alla umgjörð dansatriðisins.
- Í hópakeppni eru 2-7 manns saman
- Atriði skal vera frumsamið af þátttakendum
- Lengd atriðis skal vera 1:40-2:00 mínútur
Skráning keppenda og miðasala er hafin í félagsmiðstöðinni.