Sumarstarf | 23.04.2012
Opnað hefur verið fyrir skráningar í sumarfrístarfið. Sótt er um viku i senn í Rafrænni Reykjavík (sjá hér borða til hliðar). Opið verður frá 11. júní - 13. júlí og aftur frá 7. ágúst - 17. ágúst.
Smiðjur á fimmtudögum | 19.03.2012
Ákveðið hefur verið að bæta við smiðjum á fimmtudögum þar sem svo mörg börn óskuðu eftir því :) Nú síðasta fimmtudag stóð til boða að föndra ísskápasegla/klemmur, dúlla sér í leikjum í tölvustofu eða spila saman nýju spilin sem voru að detta í hús. Í þetta var allt vel tekið og virtust börnin afar ánægð með daginn.