Fréttir og tilkynningar

Minni-Borgyn: OPIÐ HÚS og miðstigsráðsfundur á fimmtudaginn | 31.01.2012

Hæhæ... erum búin að fá margar fyrirspurnir hvenær næsti fundur sé. Svarið er komið í hús; á fimmtudaginn kl. 17.00 - 17.45. Á sama tíma verður opið hús fyrir alla í 5., 6. og 7. bekk en þá verður hægt að gera það sem hugann listir. Miðstigsráð mun síðan auglýsa dagskrá febrúarmánaðar. Allt að gerast.

Óvissukvöld á morgun! | 30.01.2012

Viðburðurinn Óvissukvöld starfsfólks Borgyn hefur verið haldinn nokkrum sinnum áður í gegnum tíðina. ENGINN veit hvað gert verður NEMA starfsfólkið. Hrikalega spennandi. Þú verður bara að mæta... ég held það nú. Mættu á SLAGINU 19.30.

Skráning í eftirréttakeppni Borgyn (skrolla niður...) | 30.01.2012

Eftirréttakeppni Borgyn fer fram á fimmtudaginn. Þeir sem ætla sér að vera með þurfa að skrá sig á eyðublaðið sem er hér að finna. Reglur keppninnar eru einfaldar en þær munu birtast á heimasíðunni eftir nokkrar mínútur. Skráddu þig...

Forgangslisti á SamFestinginn | 26.01.2012

Árshátíð félagsmiðstöðvanna á Íslandi verður haldin í Laugardalshöll 2. og 3. mars 2012. Hátíðin er þekkt undir nafninu Samfés-hátíðin en nú heitir hátíðin SAMFESTINGURINN. Vegna þess að „aðeins“ komast 4.500 unglingar á hátíðina og hátíðin er fyrir alla unglinga í 8., 9. og 10. bekk af öll Íslandi fær hver og ein félagsmiðstöð takmarkaða miða....

SÖNGYN | 25.01.2012

Minnum á SÖNGYN sem verður á morgun í Sigyn Rimaskóla þar sem skærustu söngstjörnur félagsmiðstöðva Gufunesbæjar mæta og taka lagið. En SÖNGYN er undankeppni Gufunesbæjar um hvaða tvö söngatriði keppa fyrir hönd Gufunesbæjar í söngkeppni SAMFESTINGSINS í Laugardalshöll 3. mars. Allir sigurvegarar undankeppna félagsmiðstöðvanna í Gufunesbæ eru keppendur í SÖNGYN.


Á döfinni


Engir viðburðir fundust.

Félagsmiðstöðvar


Reglur eftirréttakeppninnarSKRÁNINGAREYÐUBLAÐ FYRIR EFTIRRÉTTAKEPPNINAFréttabréfið Boggyn - dagskrá, fréttir og ábendingÁTAKSMÆLIRINNMyndir úr starfi félagsmiðstöðvarinnar BorgynHeimasíða Borgaskóla




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit