Fréttir og tilkynningar
Sumarfrístund 2012 | 30.04.2012
Opnað hefur verið fyrir skráningar í sumarfrístarfið. Sótt er um viku í senn í Rafrænni Reykjavík. Opið verður frá 11. júní - 13. júlí og aftur frá 7. ágúst - 17. ágúst.
Gleðilegt sumar | 20.04.2012
Gleðilegt sumar og kærar þakkir fyrir skemmtilegan vetur. ))
Póstsmiðja sem Einar Darri í 3. bekk hefur umsjón með | 03.04.2012
Einar Darri i 3. bekk kom með hugmynd af nýrri smiðju sem hann kallar póstsmiðju. Mikið hugarflug hefur verið hjá krökkunum á undanförnum vikum. Það eru að brjótast fram hugmyndir af nýjum smiðjum sem krakkarnir stjórna. Má þar nefna Póstsmiðju og hönnunarsmiðju.
Hönnun og tískusýning | 03.04.2012
Mikið hugarflug hefur verið hjá krökkunum á undanförnum vikum. Það eru að brjótast fram hugmyndir af nýjum smiðjum sem krakkarnir stjórna.
Gleðilega páska | 03.04.2012
Notalegt páskafrí er framundan. Starfsmenn og börn voru heilmikið að föndra fyrir páskana og margir fóru heim með skemmtilegt páskaföndur.
Samvinnuverkefnið okkar | 16.03.2012
Samvinnuverkefnið okkar Regnbogalands, Fjörgynar og leiskólanna Foldakots og Foldaborgar er stöðugt að taka á sig nýja mynd.
Lokað miðvikudaginn 21. mars | 16.03.2012
Miðvikudaginn 21.mars er starfsdagur frístundaheimilanna í Grafarvogi og er þá lokað í Regnbogalandi.
Skákkennsla | 15.03.2012
Krakkarnir í Regnbogalandi eru svo heppnir að á fimmtudögum eftir hádegi kemur hann Bragi Þorfinnsson að kenna krökkunum skák.
Samvinnuverkefni fyrir Barnamenningarhátíð | 14.03.2012
Framundan er margt að gerast hjá okkur í Regnbogalandi, í deiglunni er samvinnuverkefni milli leikskólanna í hverfinu, Regnbogalands og Fjörgynar. Nánari lýsing á verkefninu fer hér á eftir.