Skautaferð Stelpuklúbbsins
02.02.2012
Skautaferð stelpuklúbbsins síðastliðinn föstudag var frábær. Við fórum i Egilshöllina. Bæði starfsmenn og stelpurnar í stelpuklúbbnum skemmtu sér sannarlega vel. Eftir góða stund á svellinu fengu þær gott nesti og allir fóru glaðir og ánægðir aftur heim í Regnbogaland.