Fréttir og tilkynningar
Keiluferð 3. bekkjar | 09.05.2012
Kíkið á myndaalbúmin :) 3. bekkur skellti sér í Keiluferð í Keiluhöllina í Öskjuhlíð, föstudaginn 27. apríl. Barnaráð 3. bekkjar ákvað hvert skyldi halda og höfðu þemað í þetta sinn blátt :) Ferðin heppnaðist mjög vel og skemmtu allir sér konunglega.
Sumarstarf | 23.04.2012
Opnað hefur verið fyrir skráningar í sumarfrístarfið. Sótt er um viku i senn í Rafrænni Reykjavík (sjá hér borða til hliðar). Opið verður frá 11. júní - 13. júlí og aftur frá 7. ágúst - 17. ágúst.
Smiðjur á fimmtudögum | 19.03.2012
Ákveðið hefur verið að bæta við smiðjum á fimmtudögum þar sem svo mörg börn óskuðu eftir því :) Nú síðasta fimmtudag stóð til boða að föndra ísskápasegla/klemmur, dúlla sér í leikjum í tölvustofu eða spila saman nýju spilin sem voru að detta í hús. Í þetta var allt vel tekið og virtust börnin afar á...
Vetrarfrí | 22.02.2012
Lokað verður í Vík í vetrarfríinu, næstkomandi 23. og 24. febrúar. Tíminn verður notaður til skipulagningar. Sjáumst hress á mánudag :)
Skráning fyrir skólaárið 2012-2013 | 09.02.2012
Skráning fyrir næsta skólaár hófst mánudaginn 6. febrúar. Allir sem ætla sér að nýta þjónustu frístundaheimilisins næsta haust þurfa að sækja um. Athugið að þeir sem hafa pláss núna í Vík þurfa einnig að sækja um. Sótt er um í Rafræn Reykjavík.
Jólamarkaður | 28.11.2011
Jólamarkaður í Gufunesbæ
Í tengslum við góðgerðaviku félagsmiðstöðva Gufunesbæjar hafa börn og unglingar úr félagsmiðstöðvum, frístundaheimilum og frístundaklúbbunum Höllinni verið í góðu samstarfi. Markmið þessa samstarfs er að skapa afurðir sem verða til sölu á jólamarkaði í Hlöðunni við Gufune...
Jólamarkaður | 28.11.2011
Jólamarkaður í Gufunesbæ
Í tengslum við góðgerðaviku félagsmiðstöðva Gufunesbæjar hafa börn og unglingar úr félagsmiðstöðvum, frístundaheimilum og frístundaklúbbunum Höllinni verið í góðu samstarfi.
Starfsdagur í Vík, 23. nóvember | 22.11.2011
Starfsdagur verður í Vík verður miðvikudaginn 23. nóvember og verður því lokað. Starfsfólk mun nýta daginn til að auka þekkingu sína og fræðslu til að nýta í starfinu.
Brúnn dagur | 09.11.2011
Á föstudaginn næstkomandi 11. nóvember verður brúnn dagur hjá okkur í Vík. Það væri skemmtilegt ef allir sæju sér fært að mæta í einhverju brúnu. Við munum svo snæða eitthvað sem er brúnt á litin í síðdegishressingunni og brjóta upp á hefðbundna dagskrá :)