Fréttir og tilkynningar

Jólamarkaður

28.11.2011

Jólamarkaður í Gufunesbæ

Í tengslum við góðgerðaviku félagsmiðstöðva Gufunesbæjar hafa börn og unglingar úr félagsmiðstöðvum, frístundaheimilum og frístundaklúbbunum Höllinni verið í góðu samstarfi. Markmið þessa samstarfs er að skapa afurðir sem verða til sölu á jólamarkaði í Hlöðunni við Gufunesbæ fimmtudaginn 1. desember kl. 16:00 – 17:30. Einnig verður hægt að ylja sér á kakói og snæða piparkökur gegn vægu gjaldi. Allt andvirði sölunnar á markaðnum mun renna óskipt til Mæðrastyrksnefndar. Við hvetjum sem flesta til að kíkja við í Hlöðunni 1. desember.




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit