Fréttir og tilkynningar

Crazy vika í Fjörgyn

31.01.2012

Það verður allt sett á fullt þessa vikuna í Fjörgyn. Dagskráin er eftirfarandi:

Þriðjudagur 31. janúar:

Á þriðjudagskvöldinu ætlum við að fara "back to basics" og fara í feluleik um skólann. Alltaf gaman að finna krakkann innra með sér. Einnig ætlum við að selja pizzusneiðar og kostar hver sneið 150 kr. Svo síðast en ekki síst er síðasti skráningadagur í skíðaferðina í kvöld og það þarf að borga 2000 kr. við skráningu. Húsið opnar kl. 19:30 og það er opið til 22:00 eins og alltaf á þriðjudagskvöldum.

Fimmtudagur 2. febrúar:

Við ætlum að fara í vesturbæjarísferð í kvöld. Allir að hittast í Fjörgyn kl. 19:15 og mæta með pening í strætó og fyrir ísnum sjálfum. Trausti og Ágústa í 10. bekk eru að sjá um þessa ferð svo endilega talið við þau ef einhverjar spurningar vakna.

Föstudagur 3. febrúar:

Kokkakeppni Fjörgyn verður í kvöld. 2-5 einstaklingar saman í liði og það á að koma með hráefni að heiman og elda aðalrétt (ekki forrétt eða eftirrétt) í matreiðslustofunni milli kl. 19:30 og 21:30. Dómararnir smakka síðan afraksturinn og dæma út frá því. Veitt verður viðurkenning fyrir frumlegasta réttinn og besta réttinn. Opið til 22:30 eins og alla aðra föstudaga :)

kv, Fjörgyn Staff!




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit