Stútfull vika framundan!
30.01.2012
31.01.2012 - Púgyn, kl. 19.30-22.00
Brúðuleikhús
Þriðjudagur - Vík 19.30-22.00
BRÚÐULEIKHÚS
Já lömbin mín ef þið hélduð að Te-kynning Marra hefði verið grilluð þá segi ég bara eins og í laginu "You ain't seen nothing yet" því kvöldið í kvöld mun marka tímamót í sögu brúðuleikhúsa. Það kannast allir við Brúðubílinn gamla góða en hann er ekkert miðað við "The Magnificent Pippet Peppet Puppet Show". "TMPPPS" sem var að sjálfsögðu skrifað af Jóhannesi Bjarka og auðvita leikstýrt af Brynjari Barkarsyni a.k.a "the puppet master" en þeir sjá báðir um að ljá brúðunum líf!
Leiksýningin er í senn dramatísk ástarsaga með örlitlu Si-Fi ívafi og auðvita með spennu sem minnir mest á mynd með Chuck Norris!
Þannig ekki láta þig vanta á "The Magnificent Pippet Peppet Puppet Show"
Svo er opið hús fyrir þá sem hafa ekki gaman af brúðuleikhúsum... (sem ég veit ekki hverjir það gætu verið)
02.02.2012 - Púgyn, kl. 19.30-22.00
Hver er maðurinn?
Fimmtudagur - Vík 19.30-22.00
HVER ER MAÐURINN?
Í kvöld verður opið hús með skemmtilegum leikjum. Við ætlum í fullt af skemmtilegum leikjum sem hún Halldóra Elín mun leikstýra. Leikjum á borð við "Hver er maðurinn?", "Ef hann héti ekki þetta þá héti hann...?" og fleiri skemmtilega leiki. Allt verður þetta útskýrt á mjög einfaldan hátt þegar þið komið á opna húsið!
Já það er s.s opið hús fyrir fúla liðið.
Vegna óviðráðanlegra aðstæðna þurfum við því miður að fresta opnuninni sem átti að vera á föstudaginn til föstudagsins 10.febrúar!