Verður haldinn um allt landið miðvikudaginn, 13. nóvember.
Félagsmiðstöðvardagurinn er tækifæri fyrir alla sem hafa áhuga á að koma og skoða félagsmiðstöðina, hvort sem um er að ræða foreldra, systkyni eða einfaldlega áhugasama, unga sem aldna. Starfsmenn félagsmiðstöðvarinnar verða á svæðinu og geta svarað öllum þeim spurningum sem kunna að brenna á gestunum.
Við í Sigyn viljum hvetja ykkur, foreldra og forráðamenn, eindregið til að nýta tækifærið og mæta í félagsmiðstöðina og kynna ykkur hvað verður í gangi.
Húsið verður opið frá 18:00-21:00
Dagskrá
18:00 Sigyn opnar
18:15-19:30 Smiðjur
– Vinabandasmiðja
– Perlsmiðja – Hver perlar flottasta Sigyn merkið?
– Kleinuhringjagerð
19:30 “Allt eða ekkert?” Kahoot spurningakeppni Sigynjar – Verðlaun í boði
20:00 Sýnt verður myndband frá ferðum ársins í matsal (Síðaferð, gönguferð og 8.bekkjarferð)