Góðan daginn!
Þriðja vika október mánaðar er gengin í garð og er dagskrá vikunnar ekki að verri endanum.
Hún hljómar svona:
Unglingastig
Mánudagur 14.10 – 19:30-22:00
Karaoke: Komdu og taktu lagið!
Miðvikudagur 16.10 – 19:30-22:00
Skæri, blað, steinn: Mjög skemmtilegt twist á þessum sígilda leik niðri í íþróttasal
Fimmtudagur 17.10 -19:30-22:00
Dagopnun: Komdu og chillaðu með okkur í gatinu eða eftir skóla.
Föstudagur 18.10 -19:30-22:30
Kökukeppni: Bakaðu köku, komdu með í Fjörgyn og þú gætir unnið! Viðburður sem getur ekki klikkað
Miðstig
Mánudagur 14.10 – 15:00-17:00
Morgunkorn og netflix: fátt betra en að fá sér morgunkorn með góðum netflix þætti
Þriðjudagur 15.10 – 17:00-19:00
7.bekkjarklúbbur: Þriðji hittingur klúbbsins, aðeins opið fyrir skráða meðlimi
Miðvikudagur 16.10- 15:00-17:00
6.bekkjarklúbbur: Þriðji hittingur klúbbsins, aðeins opið fyrir skráða meðlimi
Föstudagur 18.10 – 16:30-18:30
Hjartsláttur: Sprenghlægilegur og skemmtilegur leikur
Hlökkum til að sjá ykkur í vikunni!
– Starfsfólk Fjörgynjar