í flokknum: Félagsmiðstöðvar (10-16 ára), Fjörgyn, Gufunesbær

Góðan daginn!
Eins og flestir vita breyttist starfið okkar mikið í mars og munum við halda sama sniði núna í apríl.
Lokað var fyrir beina starfsemi félagsmiðstöðva með börnum og unglingum og því var ákveðið að félagsmiðstöðvar í Reykjavík yrðu með rafrænt starf. Allt okkar starf fer því núna fram á samfélagsmiðlum Fjörgynjar. Instagram er okkar stærsti miðill og erum við með allskonar skemmtilegt í gangi þar. Við höfum verið með allskonar áskoranir og leiki í gegnum Instagram Live, einnig höfum við verið með spurningakeppni, kennt bakstur, komið með hugmyndir af heimaæfingum og fleira skemmtilegt.
Apríl mánuður verður algjör veisla á samfélagsmiðlunum okkar og verður alltaf eitthvað nýtt og skemmtilegt í gangi hjá okkur. Við gefum ekki út mánaðar dagskrá, heldur vinnum við með vikudagskrá en við auglýsum daglega hvað er á dagskránni hvern daginn.

Vikan byggist svona upp:
Mánudagur: Live á instagram kl.20 og kl.21
Þriðjudagur: Ýmislegt skemmtilegt á samfélagsmiðlum.
Miðvikudagur: Live á instagram kl.20 og kl.21
Fimmtudagur: Ýmislegt skemmtilegt á samfélagsmiðlum.
Föstudagur: Live á instagram kl.20 og kl.21

10-12 ára starfið hefur ekki verið neitt síðustu daga þar sem fæst börn í 10-12 ára starfinu hafa aldur til að vera á samfélagsmiðlum. En við höfum útbúið síðu sem við ætlum að nota undir skemmtilegt efni fyrir þann hóp. Hér er hún:
https://sway.office.com/VNAJgG2EKFAJ1LBI?ref=Link&fbclid=IwAR1ihebqtRyGyYoW2BygOySKyFCIQz90CuCCSSqVKm969gLPYkUSsnt6TfA
Við hvetjum foreldra til að fylgja okkur á samfélagsmiðlum og tagga okkur eða senda okkur línu ef þið gerið eitthvað af síðunni.

Við söknum krakkana okkar mjög mikið og er þetta sannarlega áskorun, en áskorun sem við tökum með jákvæðum og opnum hug! Verið dugleg að fylgjast með okkur á Instagram : felagsmidstodin_fjorgyn og snapchat: fjorgynfelo
Setjum inn nýtt og skemmtilegt efni alla daga!

Bestu kveðjur
– Starfsfólk Fjörgynjar

 

Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt