10-12 ára starf – sumar 2018
Í sumar verður starfsemi frístundaheimila Gufunesbæjar í Brosbæí Vættaskóla Engjum, Galdraslóð í Kelduskóla Vík, Hvergilandi í Vættaskóla Borgum, Kastala í Húsaskóla, Regnbogalandi í Foldaskóla, Simbað sæfara í Hamraskóla og Tígrisbæ við Rimaskóla fyrir börn úr 1. – 4. bekk, fædd 2008 – 2011. Starfsemi Ævintýralands í Kelduskóla Korpu sameinast Galdraslóð en tekið verður á móti börnum í Ævintýralandi og þeim fylgt í Galdraslóð og svo til baka í lok dags.
Sumarstarfið byggir á áralangri reynslu og allir starfsmenn hafa starfað með börnum í frístundaheimilum Gufunesbæjar. Í upphafi hverrar viku er gerð dagskrá sem byggir á frjálsum leik, skapandi starfi, smiðjum, þemadögum, hreyfingu, útiveru og ferðum. Áhersla er lögð á að virkja börnin til ákvarðanatöku um hina ýmsu þætti starfsins. Einnig verður lögð áhersla á að hafa ólíka dagskrá fyrir ólíka aldurshópa og samstarf verður milli frístundaheimila varðandi börnin úr 3. og 4. bekk.
Gufunesbær áskilur sér rétt til þess að sameina námskeið ef þátttaka á hverjum stað er ekki næg og verða forráðamenn þá látnir vita um breytingar um hádegi á föstudegi áður en námskeið hefst.
Sumarstarfið verður frá 8. júní til 6. júlí og svo aftur frá 7. til 21. ágúst. Í Tígrisbæ verður einnig opið vikuna 9. til 13. júlí. Frístundaheimilin eru opin kl. 8:00–17:00. Grunngjaldið miðast við tímann milli kl. 9:00 og 16:00, en greitt er fyrir viðbótarstund/-ir þess utan.
Grunngjald fyrir eina viku í sumarfrístund kl. 9.00-16.00 er kr. 8.910. Verð fyrir viðbótarstund frá kl. 8.00-9.00 að morgni eða kl.16.00-17.00 kr. 2.600 á viku. Veittur er 20% systkinaafsláttur.
Kastali og Tígrisbær eru í samstarfi við sunddeild Fjölnis um að sækja börn sem hefja daginn á sundnámskeiði og taka síðan þátt í sumarfrístund á þeim stöðum.
Í sumar verður samstarf á milli Gufunesbæjar og Fjölnis þar sem börnum úr 1. til 3. bekk, fædd 2009 – 2011, býðst að vera á íþróttanámskeiði á móti sumarfrístund frá kl. 8:30 – 16:30 eða samtals í 8 klukkustundir. Samstarfið er á milli sumarfrístundar sem staðsett verður í Egilshöll og fimleika/fótbolta í Egilshöll Hádegismatur er innifalinn í grunngjaldi.
Frístundaheimilin Kastali í Húsaskóla og Tígrisbær við Rimaskóla verða í samstarfi við sunddeild Fjölnis í sumarstarfinu. Foreldrum/forráðamönnum barna í 1. og 2. bekk býðst að skrá börn sín á sundnámskeið hjá Fjölni um leið og þeir skrá þau í sumarfrístundina. Börnin mæta daglega á sundnámskeið hjá Fjölni, sem hefst kl. 8:15 í Grafarvogslaug. Þar munu starfsmenn sundnámskeiðsins taka á móti þeim og fylgja í gegnum búningsklefa. Frístundaleiðbeinendur sækja börnin í anddyri Grafarvogslaugar að sundnámskeiði loknu og fylgja þeim í frístundaheimilið. Námskeiðin eru tvær vikur að lengd.
Tímabil:
11. júní – 22. júní (10 dagar)
25. júní – 06. júlí (10 dagar)
07. ágúst – 17. ágúst (9 dagar)
Gjaldskrá:
9 dagar: 23.420 kr.
10 dagar: 26.020 kr.
Skráning hófst 25. apríl: http://sumar.fristund.is