í flokknum: Dregyn

Kæru lesendur, þá erum við búin að opna og halda okkar fyrstu opnun sem var frábær.
Við fengum ca 63 unglinga í hús sem er meira en frábært og yndislegt. Við erum svo ángæð að unglingarnir okkar eru jafn spenntir og við starfsfólkið.
Fyrsta opnunin var á fimmtudaginn og buðum við 8.bekk að mæta fyrr, við gerum það til að bjóða þau velkomin í unglingadeildina og fara yfir það sem þaf að fara yfir með þeim og brýna á helstu viðmiðum (þá erum við að tala um relgurnar okkar sem við köllum viðmið, hljómar betur) Svo buðum við þeim upp á fría pizzu.
Einnig var opið á föstudaginn var, og var mætingin jafn góð og á fimmtudaginn.

Í vetur ætlum við að leggja okkar að mörkum að hafa dagskránna sem fjölbreyttasta svo að allir finni eitthvað sér við hæfi. Við munum einnig vera dugleg að setja inn fréttir og myndir af viðburðum og opnum húsum svo að þið foreldrar og forráðamenn getið séð hvað við erum að bralla 🙂

Okkur hlakkar mikið til vetrarins og getum ekki beðið eftir að deila því með ykkur.

Við erum búin að opna like síðu og þætti okkur ótrúlega vænt um að ef þið gætuð smellt einu fínu like á hana 🙂 þar munum við einning vera dugleg að birta dagskrár og fleiri myndir og annað spennandi.

Kær kveðja Starfsfólk Dregyn

 

Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt