Næstkomandi miðvikudag, 14. nóvember, er hinn árlegi félagsmiðstöðvardagur. Við í Höllinni ætlum að halda hann hátíðlegan tveimur dögum fyrr með því að bjóða foreldrum og börnum í foreldrakaffi mánudaginn 12. nóvember, klukkan 17:00 til 19:00, þar sem boðið verður upp á veitingar og ýmsa afþreyingu. Við í Höllinni vonumst til þess að sjá sem flesta.