Gufunesbær Hvergiland Sumar
 
8.7.2010

Fimmtudagsfiðringur

Jæja þá er kominn fimmtudagur og erum við á leiðinni í Fjölskyldu og Húsdýragarðinn en þar er staðsett vísindatjald sem krakkarnir sækjast mikið í.
Í gær fórum við í sund í Kópavogi og skemmtum við okkur alveg gríðarlega vel!
Myndasíðan hjá okkur liggur niðri um stundarsakir en við vonum að hægt sé að skella inn myndum von bráðar
29.6.2010

Hreyfing 28.júní - 2.júlí

Vikan 28.júní-2.júlí er vika hreyfingar hjá okkur í Gleðilandi (Hvergiland og Vík).
Mánudagar eru heimadagar og eru börnin þá í úti- og innileikjum.
Í dag þriðjudag fórum við í keilu og börnunum til mikillar ánægju. Við komum við á Gubbu-róló en hann dregur nafn sitt af rólu einni sem er á róluvellinum. Börnin prófuðu róluna en sem betur fer varð engum meint af.
Við ætlum í sundlaugina á Álftanesi á morgun. 
28.6.2010

Dýr og náttúran 21-25 júní

Miðvikudaginn 23 júní fórum við í Nauthólsvík með sundföt. Það var sól og frábært veður og vorum við í sjónum og pottunum til skiptis. Frábær dagur.
Fimmtudaginn 24 júní fórum við í Húsdýragarðinn við góðar undirtektir hjá börnunum.
Föstudaginn 25 júní var farið í bæinn. Byrjuðum í Hljómskálagarðinum fórum síðan á Ingólfstorg og hlustuðum á hljómsveit sem var að spila þar. Síðan var rölt upp Laugarveginn og fengið sér að borða á Hjartatorginu. Síðan var fylgst með spæjurum sem voru á sveimi á Laugarveginum að lokum fengum við okkur íspinna og fórum heim.
  Í dag er 4. september 2010
<september 2010>
mþmffls
303112345
6789101112
13141516171819
20212223242526
27282930123
45678910
Mánaðaryfirlit Vikuyfirlit
Flokkayfirlit Leit
Á DÖFINNI
Engir viðburðir eru skráðir á næstunni