í flokknum: Félagsmiðstöðvar (10-16 ára), Gufunesbær, Púgyn

Þriðjudagurinn 24.okt – Kelduskól Vík 19:00 – 22:00 : Strákakvöld

Þetta kvöldið ráða stráka ríkjum í Púgyn. Boðið verður uppá Pizzahlaðborð og gos fyrir 500.kr og fer skráning fram á vegg félagsmiðstöðvarinnar og einnig er hægt að skrá sig hér  https://goo.gl/forms/3uBGOTRCtD8LYA7h2   Skráningu líkur 24.okt kl 18:00

Við ætlum að hafa Fifa 17 2v2 mót og boðið verður uppá vegleg verðlaun fyrir sigurvegarar kvöldsins. Farið verður í Risa Stinger og einnig ætlum við að hafa Borðtennismót 1v1.

Boltinn verður í beinni þar sem leikur Swansea og Man Utd verður sýndur. Íþróttasalurinn og allt sem opið hús hefur uppá bjóða verður einnig í boði á þessu skemmtilega Strákakvöldi.

 

Fimmtudagurinn 26.okt : Kelduskóla Vík – 19:00 – 22:00 : Capture The Flag

Við ætlum að skipta í lið og fara í Capture The Flag. Leikurinn hefst kl 20:00 og er mikilvægt að þau sem ætla að taka þátt taki með sér útiföt enda mun leikurinn fara fram á lóð skólans. Opið hús og allt sem það hefur uppá að bjóða.

 

Föstudagurinn 27 .okt –Kokkakeppi í Korpu (Eftirréttakeppni) 19:00 – 22:30

Við ætlum að hafa opnun í Korpu þetta kvöldið og halda kokkakeppni þar sem unglingarnir spreyta sig í eldhúsinu. 1-3 saman í liði og keppt verður um bestu eftirréttina. Keppendur þurfa að skaffa hráefni og útbúa eftirréttinn í eldhúsinu í Korpuskóla.

Vegleg verðlaun í boði en veitt verður verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætinn ef þátttaka verður góð.

Dæmt verður eftir: Bragði, útliti, frumleika og hvernig rétturinn er borinn fram.  

Skráning fer fram hér https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSecsoyV6N3l5xr0RzFDDoPvpXKr_GFDM28rLCK03-vWZpSFZQ/viewform?usp=send_form

Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt