Góðan dag,
Okkur hefur borist tilkynning um gula veður viðvörun, og vegna þess er óskað eftir að öll börn séu sótt í frístundaheimilin í dag.
Það verða því engin börn send gangandi heim í dag. Frístundaheimilin eru opin til kl. 17:00 og verða börnin þar í góðum gír þar til þau verða sótt.
Varðandi æfingar, þá hefur Fjölnir ekki sent út tilkynningu um breytingar á æfingatímum, því er gert ráð fyrir að fylgdaraðili mæti til okkar eins og venjulega til að fylgja börnunum í strætó á æfingu. Ef einhverjar breytingar verða á æfingatímum barnanna í dag er nauðsynlegt að við fáum upplýsingar um það í pósti eða símleiðis og helst fyrir kl. 13:00.
Ef foreldrar sækja börnin upp í Egilshöll eftir æfingu þurfa upplýsingar að berast til okkar.
-Starfsfólk frístundaheimila Grafarvogs