Frístundaheimilið Brosbær er staðsett við Engjaskóla í Grafarvogi. Brosbær er eitt af sex starfandi frístundaheimilum sem tilheyra frístundamiðstöðinni Gufunesbæ.
Frístundaheimilið er staðsett í anddyri Engjaskóla. Erum við með fjögur rými, eitt við anddyri skólans sem við köllum Hjartað, eitt á efri hæð sem börnin hafa nefnt Regnbogatorg og tvö á neðri hæð sem aðallega eru ætluð eldri börnunum. Einnig höfum við aðgang að bókasafni, tölvustofu, heimilisfræðistofu og íþróttahúsi. Síðdegishressinguna snæða börnin í matsal skólans.
Við leggjum áherslu á barnalýðræði í starfsemi okkar þar sem börnin velja sjálf hvað þau leika með og hverju þau taka þátt í, hafa þau einnig áfrif á hvað keypt er inn af leikföngum. Boðið er uppá skipulagða dagskrá fyrir alla aldurshópa og það er val barnanna hvort þau taki þátt í dagskránni eða séu þá í frjálsum leik í Brosbæ. Innra skipulag er byggt upp þannig að yngstu börnin fá mest frjálsan leik en tilboðum fjölgar svo eftir því sem þau verða eldri og einnig á vorönn. Hópa-og klúbbastarf er sniðið eftir aldri og þroska barnanna en einnig eftir áhugasviði þeirra.
Hálfsmánaðarlega erum við með barnaráð sem fær að ráða einum degi í komandi viku. Þá er dregið í ráðið á barnafundi sem haldinn er með öllum börnunum aðra hvora viku, barnaráð fundar undir lok vikunnar og komast að sameiginlegri niðurstöðu um hvað á að gera og hvaða þema verður í gangi daginn sem þau velja. Öll börn frá 2. – 4. bekk í Brosbæ fá að sitja einu sinni hvern vetur í barnaráði.
Tilgangur frístundaheimilisins er að veita börnunum tækifæri til að stunda frístund við þeirra hæfi. Í Brosbæ læra börnin meðal annars að vera vinir, vera góð hvert við annað, bera virðingu hvert fyrir öðru og hvernig á að leika sér fallega.
Vinnur alla daga
Vinnur alla daga
Vinnur þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga
Vinnur alla daga
Vinnur mánudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga
Vinnur mánudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga
Vinnur alla daga
Vinnur alla daga
Vinnur mánudaga og föstudaga
Vinnur mánudaga og miðvikudaga
Vinnur alla daga
Starfsáætlun er í vinnslu og er væntanleg
Gildi Gufunesbæjar eru Fagmennska – Fjölbreytileiki og Gleði