Frístundaheimilið Brosbær – Engjaskóla

Forsíða / BrosbærGamla / Um Brosbæ

Um frístundaheimilið Brosbæ

Frístundaheimilið Brosbær er staðsett við Engjaskóla í Grafarvogi. Brosbær er eitt af sex starfandi frístundaheimilum sem tilheyra frístundamiðstöðinni Gufunesbæ.

Frístundaheimilið er staðsett í anddyri Engjaskóla. Erum við með fjögur rými, eitt við anddyri skólans sem við köllum Hjartað, eitt á efri hæð sem börnin hafa nefnt Regnbogatorg og tvö á neðri hæð sem aðallega eru ætluð eldri börnunum. Einnig höfum við aðgang að bókasafni, tölvustofu, heimilisfræðistofu og íþróttahúsi. Síðdegishressinguna snæða börnin í matsal skólans.

Við leggjum áherslu á barnalýðræði í starfsemi okkar þar sem börnin velja sjálf hvað þau leika með og hverju þau taka þátt í, hafa þau einnig áfrif á hvað keypt er inn af leikföngum. Boðið er uppá skipulagða dagskrá fyrir alla aldurshópa og það er val barnanna hvort þau taki þátt í dagskránni eða séu þá í frjálsum leik í Brosbæ. Innra skipulag er byggt upp þannig að yngstu börnin fá mest frjálsan leik en tilboðum fjölgar svo eftir því sem þau verða eldri og einnig á vorönn. Hópa-og klúbbastarf er sniðið eftir aldri og þroska barnanna en einnig eftir áhugasviði þeirra.

Hálfsmánaðarlega erum við með barnaráð sem fær að ráða einum degi í komandi viku. Þá er dregið í ráðið á barnafundi sem haldinn er með öllum börnunum aðra hvora viku, barnaráð fundar undir lok vikunnar og komast að sameiginlegri niðurstöðu um hvað á að gera og  hvaða þema verður í gangi daginn sem þau velja. Öll börn frá 2. – 4. bekk  í Brosbæ fá að sitja einu sinni hvern vetur í barnaráði.

Tilgangur frístundaheimilisins er að veita börnunum tækifæri til að stunda frístund við þeirra hæfi. Í Brosbæ læra börnin meðal annars að vera vinir,  vera góð hvert við annað, bera virðingu hvert fyrir öðru og hvernig á að leika sér fallega.

 

Um Brosbæ
Starfsmenn

Starfsmenn

  • María Una Óladóttir
    María Una Óladóttir Forstöðumaður í Brosbæ
  • Bjarki Freyr
    Bjarki Freyr Frístundafræðingur

    Vinnur alla daga

    • Guðlaug Ósk
      Guðlaug Ósk Frístundaleiðbeinandi

      Vinnur alla daga

      • Fanný
        Fanný Frístundaleiðbeinandi með umsjón

        Vinnur mánudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga

        • Sara
          Sara Frístundaleiðbeinandi með umsjón

          Vinnur mánudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga

          • Agnes
            Agnes Frístundaleiðbeinandi

            Vinnur alla daga

            • Freyja
              Freyja Frístundaleiðbeinandi

              Vinnur alla daga

              • Íris
                Íris Frístundaleiðbeinandi

                Vinnur mánudaga og föstudaga

                • Gerður Sif
                  Gerður Sif Frístundaleiðbeinandi

                  Vinnur mánudaga og miðvikudaga

                  • Siggi
                    Siggi Frístundaleiðbeinandi

                    Vinnur alla daga

                    • Grétar
                      Grétar Frístundaleiðbeinandi með umsjón

                      Vinnur alla daga

                      • Ásdís Erla
                        Ásdís Erla Frístundaleiðbeinandi

                        Vinnur  þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga

                        Starfsáætlun

                        Starfsáætlun er í vinnslu og er væntanleg

                        Gildi

                        Gildi Gufunesbæjar eru Fagmennska – Fjölbreytileiki og Gleði

                        Contact Us

                        We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

                        Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt