Sumarstarf Fjörgyn

Félagsmiðstöðvarnar bjóða upp á sumarstarf eftir að vetrarstarfi lýkur. Boðið er upp á smiðjur, námskeið og opnanir á mánudags- og miðvikudagskvöldum í félagsmiðstöðvunum.

Sumarstarf

  • 10 til 12 ára

  • Frístundamiðstöðin Gufunesbær býður upp á frístundastarf  í sumar fyrir börn sem ljúka 5. – 7.bekk nú í vor.
  • Þátttökugjöld eru í samræmi við verðskrá borgarinnar.
  • Boðið verður upp á smiðjur á tímabilinu 14. júní til 9. júlí.
  • Um er að ræða yfir margar mismunandi smiðjur og námskeið sem standa yfir í hálfan eða heilan dag.
  • Skráningin hefst 11. maí kl. 10:00.
  • Mikill fjölbreytileiki er í dagskránni og því ættu öll börn á þessum aldri að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
  • Smiðjurnar og námskeiðin fara fram í félagsmiðstöðvunum í hverfinu og er það tilgreint við skráningu, ásamt því sem farið er í ferðir út um hvippinn og hvappinn.
  • Ef foreldrar geta ekki nýtt sér rafræna innritun geta þeir farið á frístundamiðstöðvar SFS  og fengið aðstoð við skráningu.
  • Ekki er hægt að skrá börn í sumarstarf í gegnum síma. Starfsfólk frístundamiðstöðva og Símavers Reykjavíkurborgar (s. 411-1111) getur þó leiðbeint símleiðis ef forráðamenn eru við nettengda tölvu.
  • Forráðamönnum er bent á að ekki er um vistun að ræða.
  • Mæting í smiðjur og námskeið er á ábyrgð forráðamanna. Einnig er mikilvægt að börn komi klædd eftir veðri, með þann útbúnað sem er tilgreindur við smiðjuna ásamt hollu nesti og vatnsbrúsa.
  • Athugið að ekki er hægt að nýta frístundakortið í sumarstarf á vegum SFS.

  • 13 til 16 ára

  • Í sumar munu félagsmiðstöðvarnar Fjörgyn, Sigyn og Vígyn sem tilheyra Frístundamiðstöðinni Gufunesbæ í Grafarvogi bjóða upp á opnanir á mánudags- og miðvikudagskvöldum í júní og til og með 7. júlí.
  • Með starfsemi félagsmiðstöðva er verið mæta þörfum unglinga fyrir fjölbreytt frítímastarf og samveru með jafnöldrum.
  • Rannsóknir sýna að þátttaka í skipulögðu frítímastarfi hefur mikið forvarnargildi og styrkir unglinga til virkari þátttöku í samfélaginu.
  • Starfsemi félagsmiðstöðva miðar að því að bjóða öllum unglingum valkost í frítímanum undir handleiðslu hæfra starfsmanna.
  • Félagsmiðstöðvar eru því mikilvægur vettvangur fyrir ófélagsbundna unglinga.
  • Boðið verður upp á opnanir á mánudags- og miðvikudagskvöldum frá 20:00-22:30.
  • Einnig mun hver félagsmiðstöð hafa opið einn föstudag í júní frá 20-22:30.
  • Allir viðburðir verða auglýstir á facebook síðum félagsmiðstöðvanna og á instagram.

Sumarnámskeið á Frístundavef ÍTR

Nánari upplýsingar um sumarfrístundastarf og skráningu eru að finna á frístundavef ÍTR.

Sumarstarf

Hvað viltu skoða næst?

Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt