Frístundamiðstöðin Brúin er rekin af Skóla- og frístundasviði Reykjavíkur. Vettvangur starfsemi Brúarinnar er frítími íbúa í Árbæ, Norðlinga– og Grafarholti, Úlfarsárdal og Grafarvogi.
Brúin heldur utanum starfsemi frístundaheimila og félagsmiðstöðva í Grafarvogi og Árbæ. Í frístundastarfi á vegum Brúarinnar er lögð áhersla á öryggi og vellíðan.
Útilífssvið Brúarinnar starfrækir Miðstöð útivistar og útináms (MÚÚ) sem er miðlæg þekkingarstöð á sviði útivistar og útináms fyrir skóla- og frístundarstarf í Reykjavík. Sviðið heldur einnig utan um starfsemi frístundagarðsins við Gufunesbæ og skíðabrekkur borgarinnar.
Hlaðan er fjölnotasalur sem tilheyrir Brúnni frístundamiðstöð og hentar vel fyrir fundi, námskeið, litlar ráðstefnur, starfsdaga, smiðjuvinnu, tónleika og aðra menningartengda dagskrá.