Hlutverk og leiðarljós

Forsíða / Gufunesbær / Hlutverk

Skóla- og frístundasvið

Veita börnum og ungmennum bestu mögulegu tækifæri til leiks, menntunar og frístundastarfs í samvinnu við fjölskyldur og nærsamfélagið. Vera framsækið forystuafl í skóla- og frístundastarfi.

Gufunesbær

Bjóða íbúum Grafarvogs upp á félags- og tómstundastarf sem hefur forvarnar, menntunar- og afþreyingargildi.

Stuðla að félagslegri velferð og að þjónustan sé farvegur óformlegrar menntunar, menningar, uppeldis og lýðræðislegrar þátttöku.

Efla félagsauð með því að stuðla að heilbrigði og félagslegri þátttöku hverfisbúa í frístundastarfi.

Stuðla að umhverfi sem einkennist af hlýju, öryggi og virðingu.

Bjóða upp á aðstöðu til afþreyingar og samveru með jafnöldrum í öruggu umhverfi sem tekur mið af aldri þeirra og þroska.

Stuðla að því að frístundagarðurinn við Gufunesbæ og skíðabrekkur borgarinnar séu eftirsóknarverður vettvangur fyrir alla aldurshópa til að stunda fjölbreytta útivist og frístundaiðkun, árið um kring.

Miðstöð Gufunesbæjar í útivist, útinámi leitist eftir að efla og styrkja þekkingu starfsfólks í skóla- og frístundastarfi borgarinnar um útivist, útinám og sjálfbærni.

Leiðarljós

Að öll börn og ungmenni í borginni eigi kost á menntun og leik við sitt hæfi, þar sem ýtt er undir sköpun og frumkvæði og byggt er á styrkleikum, áhuga og færni hvers og eins. Þeim líði vel, fari stöðugt fram og öðlist uppeldi og menntun sem nýtist þeim í lífinu.

Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt