Félagsmiðstöðin Fjörgyn er staðsett í Foldaskóla og er með starf fyrir Foldaskóla (5.-10. bekkur), Húsaskóla (5.-7. bekkur) og Hamraskóla (5.-7. bekkur).
Starfsfólk okkar hefur að leiðarljósi að tryggja vellíðan og öryggi allra barna og unglinga í starfi sínu. Við leggjum áherslu á jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðurinn endurspegli það fjölbreytilega samfélag sem borgin er.