Í vetrarleyfinu í dag, þriðjudaginn 23. febrúar hélt skákdeild Fjölnis glæsilegt skákmót fyrir grunnskólanemendur sem tefldu og var mikið um dýrðir. Tefldar voru 6 umferðir og boðið upp á gómsætar vöfflur með sultu, rjóma og súkkulaðisósu að skákmóti loknu ásamt verðlaunahátíð og happadrætti að hætti skákæfinga Fjölnis.