Innan borgarmarka Reykjavíkur eru þrjár skíðalyftur sem ætlaðar eru börnum og byrjendum. Þær eru í Ártúnsbrekku við Rafstöðvaveg, í Breiðholti við Jafnarsel og í Grafarvogi við Dalhús. Ekkert kostar í lyfturnar.
Lyfturnar eru opnar virka daga frá kl. 17:00 – 20:00 og um helgar frá kl. 11:00 – 17:00, ef aðstæður leyfa
Símsvari skíðasvæðanna er uppfærður daglega frá 1.nóv – 1.apr ef útlit er fyrir skíðaiðkun
Lyfturnar eru opnar virka daga frá kl. 17:00 – 20:00 og um helgar frá kl. 11:00 – 17:00, ef aðstæður leyfa
Símsvari skíðasvæðanna er uppfærður daglega frá 1.nóv – 1.apr ef útlit er fyrir skíðaiðkun – 8785798
Hafðu samband með því að senda okkur skilaboð í gegnum facebook síðu Skíðasvæðanna í borginni
Starfsemi Gufunesbæjar
Frístundamiðstöðin Gufunesbær er rekin af Skóla- og frístundasviði Reykjavíkur. Vettvangur starfsemi Gufunesbæjar er frítími allra Grafarvogsbúa, en megináherslan er lögð á barna- og unglingastarf.
Frístundamiðstöðin Gufunesbær er rekin af Skóla- og frístundasviði Reykjavíkur. Vettvangur starfsemi Gufunesbæjar er frítími allra Grafarvogsbúa, en megináherslan er lögð á barna- og unglingastarf.
Frístundaheimilin starfa við alla grunnskóla borgarinnar og þar er boðið upp á skipulagt frístundastarf fyrir 6–9 ára börn. Börn geta dvalið á frístundaheimilinu frá því að skólinn er búinn og til klukkan 17:00 og allan daginn á sumrin. Boðið er upp á síðdegishressingu, ávexti, grænmeti, brauð og holla drykki.
Félagsmiðstöðvar í Reykjavík bjóða upp á fjölbreytt frístundastarf fyrir 10–16 ára börn og unglinga. Félagsmiðstöðvar eru opnar eftir að skóla lýkur, á kvöldin og yfir sumartímann. Dagskrá félagsmiðstöðva er aðgengileg á heimasíðum og samfélagsmiðlum félagsmiðstöðvanna.
Frístundagarðurinn býður upp á fjölbreytta aðstöðu til útivistar, útináms, afþreyingar og menningar fyrir alla aldurshópa og veitir sértæka þjónustu á svæðinu til að styðja við þennan þátt í frístunda- og skólastarfi sem og í lífi borgarbúa.
Innan borgarmarka Reykjavíkur eru þrjár skíðalyftur sem ætlaðar eru börnum og byrjendum. Þær eru í Ártúnsbrekku við Rafstöðvaveg, í Breiðholti við Jafnarsel og í Grafarvogi við Dalhús. Ekkert kostar í lyfturnar.
Hlaðan er fjölnota salur sem tilheyrir frístundamiðstöðinni Gufunesbæ og hentar vel fyrir fundi, námskeið, litlar ráðstefnur, starfsdaga, smiðjuvinnu, tónleika og aðra menningartengda dagskrá.