Frístundaheimilið Tígrisbær – Rimaskóla

Forsíða / Um Tígrisbæ-gamla

Um frístundaheimilið Tígrisbæ

Frístundaheimilið Tígrisbær er staðsett við Rimaskóla í Grafarvogi. Tígrisbær er eitt af átta starfandi frístundaheimilum sem tilheyra frístundamiðstöðinni Gufunesbæ.

Frístundaheimilið er staðsett í skálum við skólalóð Rimaskóla. Eldri börnin nýta aðstöðu með félagsmiðstöðinni Sigyn. Einnig höfum við aðgang að bókasafni, tölvustofu, heimilisfræðistofu og íþróttahúsi.

Við leggjum áherslu á barnalýðræði í starfsemi okkar þar sem börnin velja sjálf hvað þau leika sér með og hverju þau taka þátt í. Boðið er uppá skipulagða dagskrá fyrir alla aldurshópa og það er val barnanna hvort þau taki þátt í dagskránni eða séu þá í frjálsum leik í Tígrisbæ. Innra skipulag er byggt upp þannig að yngstu börnin fá mest frjálsan leik en tilboðum fjölgar svo eftir því sem þau verða eldri og einnig á vorönn. Hópa-og klúbbastarf er sniðið eftir aldri og þroska barnanna en einnig eftir áhugasviði þeirra.

Hálfsmánaðarlega erum við með barnaráð sem fær að ráða einum degi í komandi viku. Þá er dregið í ráðið í byrjun vikunnar, þau funda undir lok vikunnar og komast að sameiginlegri niðurstöðu um hvað eigi að borða og hvaða þema verður í gangi daginn sem þau velja. Öll börn í Tígrisbæ fá að sitja einu sinni hvert skólaár í barnaráði.

Tilgangur frístundaheimilisins er að veita börnunum tækifæri til að stunda frístund við þeirra hæfi. Í Tígrisbæ læra börnin að vera vinir, góð hvert við annað og hvernig á að leika sér fallega.

 

Um Tígrisbæ-gamla
Starfsmenn

Starfsmenn

  • Ásrún Ýr Rúnarsdóttir forstöðumaður
    Ásrún Ýr Rúnarsdóttir forstöðumaður Forstöðumaður - Tígrisbær
  • Óskar
    Óskar Frístundaleiðbeinandi

    Vinnur alla daga

    • Karen Anna
      Karen Anna Aðstoðarforstöðumaður
      • Árni Þór
        Árni Þór Frístundaráðgjafi
        • Sóley
          Sóley Stuðningsstarfsmaður

          Vinnur alla daga

          • Eydís
            Eydís

            Vinnur mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga

            • Heimir
              Heimir Frístundaleiðbeinandi

              Vinnur alla daga til kl. 16:30

              • Atli Fannar
                Atli Fannar Frístundaleiðbeinandi

                Vinnur fimmtudaga og föstudaga

                • Bergþór Atli
                  Bergþór Atli Stuðningsstarfsmaður

                  Vinnur alla daga

                  • Natalía
                    Natalía Frístundaleiðbeinandi

                    Vinnur fimmtudaga og föstudaga

                    • Aron Fannar
                      Aron Fannar Frístundaleiðbeinandi

                      Vinnur mánudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga

                      • Sanja
                        Sanja Frístundaleiðbeinandi

                        Vinnur alla daga

                        • Ásthildur
                          Ásthildur Stuðningsstarfsmaður

                          Vinnur alla daga

                          • Úlfur
                            Úlfur Frístundaleiðbeinandi

                            Vinnur þriðjudaga, miðvikudaga og föstudaga

                            Starfsáætlun

                            Starfsáætlun…

                            Gildi
                            Contact Us

                            We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

                            Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt