Frístundaheimilið Regnbogaland – Foldaskóla

Um frístundaheimilið Regnbogalandi

Frístundaheimilið Regnbogaland er staðsett á 2. hæði í vesturenda Foldaskóla, Grafarvogi. Regnbogaland er eitt af sex starfandi frístundaheimilum sem tilheyra frístundamiðstöðinni Gufunesbæ, og skiptist aðallega í tvær stofur: Regnbogaland og Stjörnustofuna. Auk þess höfum við aðgang að tónmenntastofunni, aðstöðunni hjá félagsmiðstöðinni Fjörgyn, tölvustofunni , íþróttasalnum og heimilisfræðistofunni en það er mjög breytilegt eftir dögum.

Við í Regnbogalandi leggjum starfið okkar upp með það í huga að reyna að bjóða upp á eins fjölbreytt starf fyrir börnin og völ er á, þannig að allir finni eitthvað við sitt hæfi og finni eitthvað sem hentar þeirra áhugasviði. Við gerum mikið út á það að bjóða upp á aðeins öðruvísi og meira spennandi starf fyrir 3. og 4. bekk og fá þau til að mynda að nota aðstöðuna í félagsmiðstöðinni þá daga sem hún er laus.

Við leggjum mikla áherslu á það að reyna að brjóta upp starfið hjá okkur með því að fara með minni hópa í vettvangsferðir og bjóða upp á allskyns smiðjur. Börnin fá að vera með í ráðum við skipulagningu þessara þátta og reynum við að koma til móts við þeirra óskir eins mikið og kostur er. Þar að auki erum við líka með fasta daga þar sem hver árgangur fyrir sig fer í útifrístund. Þá fer hópurinn í vettvangsferð strax og skóla lýkur og tekur nesti með sér. Algengir áfangastaðir eru leikvellir í nærumhverfinu, Gufunesbær og skólalóðir annarra skóla 🙂

Einnig erum við með leyniráð fyrir 3. og 4. bekk, og fá allir að taka þátt í því einu sinni yfir skólaárið. Það lýsir sér þannig að þau sem eru í leyniráðinu þann mánuðinn hittast á fundum einu sinni í viku þar sem þau fá að koma með hugmyndir að einhverri ferð fyrir 3. og 4. bekk, útfæra þær og útbúa auglýsingar. Í síðustu viku mánaðarins framkvæma þau svo viðburðinn sem þau skipulögðu og vekur það oftast mikla lukku.

Um Regnbogaland
Starfsmenn

Starfsmenn

  • Ljósbrá Loftsdóttir
    Ljósbrá Loftsdóttir Frístundaleiðbeinandi
    • Dagur Ingi Axelsson
      Dagur Ingi Axelsson Frístundaleiðbeinandi
      • Arna Haraldsdóttir
        Arna Haraldsdóttir Frístundaleiðbeinandi
        • Elva Katrín Elvudóttir
          Elva Katrín Elvudóttir Frístundaleiðbeinandi
          • Hrefna Margrét Guðmundsdóttir
            Hrefna Margrét Guðmundsdóttir Frístundaleiðbeinandi
            • Þórhildur Benediktsdóttir
              Þórhildur Benediktsdóttir Frístundaleiðbeinandi með umsjón
              • Petra Baldursdóttir
                Petra Baldursdóttir Frístundaleiðbeinandi með umsjón
                • Helga Bryndís Kristjánsdóttir
                  Helga Bryndís Kristjánsdóttir Forstöðumaður - Regnbogaland
                • Stefanía Salka Þrastardóttir
                  Stefanía Salka Þrastardóttir Frístundarleiðbeinandi með umsjón
                  • Magnús Guðmundsson
                    Magnús Guðmundsson Frístundaleiðbeinandi

                    Vinnur mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga

                    • Anna Lilja Björnsdóttir
                      Anna Lilja Björnsdóttir Frístundarleiðbeinandi með umsjón
                      • Regina Ledesma
                        Regina Ledesma Frístundaleiðbeinandi
                        • Bjarki Fannar Arnþórsson
                          Bjarki Fannar Arnþórsson Frístundaleiðbeinandi
                          Starfsáætlun

                          Starfsáætlun…

                          Gildi

                          Gleði

                          • Við leggjum áherslu á að skapa góða liðsheild.
                          • Við hrósum og hvetjum alla til að gera sitt besta.
                          • Við temjum okkur jákvætt hugarfar.
                          • Við lærum í gegnum leik og gerum daginn eftirminnilegan

                          Fjölbreytni

                          • Við berum virðingu og sýnum umburðarlyndi gagnvart ólíkum skoðunum og viðhorfum.
                          • Við erum opin fyrir nýjungum og tilbúin í breytingar.
                          • Við leggjum áherslu á lýðræðisleg vinnubrögð í leik og starfi.
                          • Við fögnum margbreytileika og komum til móts við ólíkar þarfir og áhugasvið einstaklinga og hópa.

                          Fagmennska

                          • Við erum fyrirmyndir og leggjum okkur fram við að vera besta útgáfan af okkur sjálfum.
                          • Við sýnum frumkvæði, setjum okkur markmið og leitum stöðugt leiða til að þróa hæfni okkar og þekkingu.
                          • Við leggjum áherslu á traust og samvinnu og erum heiðarleg í samskiptum.
                          • Við ígrundum stöðugt starf okkar og leitumst við að vera leiðandi á vettvangi frítímans.
                          • Við gætum ávalt fyllsta öryggis og fylgjum viðurkenndum verkferlum og siðareglum.
                          Contact Us

                          We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

                          Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt