Við samruna unglingadeilda Borgaskóla og Engjaskóla í Vættaskóla sameinuðust í kjölfarið félagsmiðstöðvarnar Borgyn og Engyn. Unglingar Vættaskóla stóðu fyrir nafnasamkeppni og fékk nafnið Dregyn flest atkvæði í kosningu. Félagsmiðstöðin Dregyn þjónar börnum og unglingum í 5. – 10. bekk í Vættaskóla. Aðalstarfsemin fer fram í húsakynnum Vættaskóla-Borgum, þó einstaka viðburðir/dagskrárliðir fari fram í Vættaskóla-Engjum.
Félagsmiðstöðvar í Reykjavík starfa samkvæmt Starfsskrá skrifstofu tómstundamála (ÍTR) sem kom út vorið 2007 og er megináherslan lögð á starf fyrir unglinga á aldrinum 13-16 ára. Starf fyrir börn á aldrinum 10-12 ára hefur þó verið að aukast í félagsmiðstöðvunum í Grafarvogi undanfarin ár. Í starfi félagsmiðstöðva er lögð áhersla á að þjálfa samskiptafærni, auka félagsfærni, styrkja sjálfsmynd og efla samfélagslega virkni og þátttöku. Barna- og unglingalýðræði er hugmyndafræðin sem starfið byggir á og tryggir áhrif barna og unglinga á starfið. Kosningar í miðstigs- og unglingaráð eru í anda þessarar hugmyndafræði en mikilvægasta hlutverk ráðanna er að virkja sem flesta til þátttöku í starfinu ásamt því að standa fyrir og skipuleggja dagskrána.
Hafðu samband:
Forstöðumaður Dregyn Stefán Örn Kárason, umsjónamaður unglingastarfs: 6955180 (Símatími: Mánudaga & miðvikudaga 08:00-16:00, þriðjudaga & fimmtudaga 13:00-22:00, föstudaga 12:00-13:00). Tölvupóstfang: stefan.orn.karason@reykjavik.is
Skrifstofa Dregyn Vættaskóla Borgir: 4117788 (Símatími: Þriðjudaga & Fimmtudaga 17:00-22:00)
Skrifstofa Dregyn Vættaskóla Engi: (Símatími: Mánudaga & Miðvikudaga 09:00-12:00)
Gufunesbær: 4115600 (Símatími: Mánudaga-Föstudaga frá 09:00-16:00)
Forstöðumaður: Stefán Örn Kárason
Aðstoðar forstöðumaður: Valentina Tinganelli
Frístundaleiðbeinendur:
Arndís Einarsdóttir
Steinar Kolbeins
Freydís Ösp Þorkelsdóttir
Jóhannes Bjarki Bjarkason
Starfsáætlun…