Þá eru fyrstu tvær vikurnar liðnar í vetrarstarfinu hjá okkur. Starfið hefur farið rólega af stað og við verið mikið í frjálsum leik og útiveru enda er veðrið búið að vera alveg frábært frá byrjun. Í september mun vera foreldrakynning og verður hún auglýst sérstaklega, bæði hér á heimasíðunni og í tölvupósti.
Á næstu vikum hefst svo vetrarstarfið hjá okkur að fullu og erum við uppfull af spenningi fyrir vetrinum