Fimmtudagurinn 15.febrúar
Hér er hægt að ná í pdf skjal af dagskránni.
10:00 – 12:00 Klifur í turninum.
Á útivistarsvæðinu við Gufunesbæ
10:00 – 12:00 Þorra og goðaratleikur – Ratleikur sem tvinnar saman þorratímabilið og söguna um Hamarsheimt. Ratleikurinn er í appi.
Á útivistarsvæðinu við Gufunesbæ
10:00 – 12:00 Ævintýrin í lundinum – Tónlist, tálg og te. Gestir geta komið og tálgað og æft réttu hnífsbrögðin, spilað á trádrumba og steina og notið tedrykkju í skemmtilegu umhverfi trjálundarins.
Á útivistarsvæðinu við Gufunesbæ
10:00 – 12:00 Slacklininig – Línuganga kynnt fyrir gestum. Hægt er að prófa að ganga, og halda jafnvægi á línu sem strengd á milli staura.
Á útivistarsvæðinu við Gufunesbæ
11:00 – 14:00 Bolamálun, morgunkornshálsmenagerð, borðspil, fermingakortagerð og Just dance
Í húsaskóla
11:00 – 14:00 Ýmsir boltaleikir og aðrir leikir
Íþróttahúsið í Dalhúsum, gengið inn um aðalinngagn íþróttahúss.
12:00 – 15:00 Félagsmiðstöðvaopnun fyrir 5.-10.bekk. Vöfflur í boði á meða birgðir endast, íþróttasalur, spil, leikir og allt sem Sigyn hefur upp á að bjóða.
Félagsmiðstöðin Sigyn í Rimaskóla
13:00 – 14:30 Blindraboltasmiðja. Vilt þú kynnast Goalball eða blindrarbolta, sem er orðin mjög stór íþróttagrein á Ólympíumóti fatlaðra.
Félagsmiðstöðin Púgyn í Kelduskóla Vík
13:00 – 15:00 Skotboltasmiðja. Skotboltastuð í íþróttahúsinu.
Félagsmiðstöðin Dregyn, Borgum
13:00 – 15:00 Brjóstsykursgerð. Lærum að búa til brjóstsykur frá grunni og velja bragð, lit og klippa niður brjóstsykurinn.
Félagsmiðstöðin Fjörgyn, matreiðslustofa, (Foldaskóli)