Grafarvogsdagurinn, hverfishátíð Grafarvogsbúa, fer nú fram í 21. sinn sunnudaginn 3. júní. Fjölbreytt dagskrá í boði meðal annars keilukennsla, zumba undir berum himni, varðeldur, klifurturn og rathlaup. Hvetjum alla til að mæta og gera sér glaðan dag.
Helstu dagskrársvæðin að þessu sinni verða í og við Egilshöll, Félagsmiðstöðinni Borgum, á Korpúlfsstöðum og í Gylfaflötinni þar sem verslunin Krumma og Landsnet bjóða til viðamikillar dagskrár. Auk þess mun Grafarvogskirkja bjóða fólk hjartanlega velkomið til sín sem og Frístundamiðstöðin Gufunesbær og Grafarvogslaug sem bjóða upp á skemmtidagskrá.
Nánari upplýsingar má nálgast hér á facebook
Hér má nálgast Grafarvogsdags bæklinginn