Frístundamiðstöðin Gufunesbær býður upp á frístundastarf í sumar fyrir börn sem ljúka 5. – 7. bekk nú í vor. Um er að ræða 54 mismunandi smiðjur sem standa yfir í hálfan eða heilan dag. Nauðsynlegt er að skrá börnin í hverja smiðju á sumar.fristund.is en skráning hefst 13. maí klukkan 10:00.
Einnig er boðið upp á vikunámskeið – Smellið hér fyrir upplýsingar um þau námskeið.