Þriðjudagurinn 30. Janúar – Kelduskóla vík 19:00 – 22:00 : Brjóstsykursgerð
Við ætlum að búa til brjóstsykur eina sem þið þurfið að gera er að mæta og skrá ykkur.
Einnig ætlum við að sýna leik Huddersfield – Liverpool sem hefst kl 20:00 fyrir þá sem hafa áhuga.
Annars er allt það góða sem opið hús bíður uppá
Fimmtudagurinn 1.febrúar – Kelduskóli vík 19:00 – 22:00 : Goalball
Leikreglur
Reglur
- 3 saman í liði.
- Leiktíminn er 5 mínútur, ekki skrifað í skýin en okkur fannst það henta.
- Uppkast hver byrjar með boltann.
- Leikmenn mega bara vera inn á liðssvæðinu og kasta þaðan. Ef leikmaður kastar boltanum og stígur yfir línuna að lendingarsvæðinu er kastið ógilt og andstæðingurinn fær boltann.
- Þegar boltanum er kastað þarf hann að snerta lendingarsvæðið fyrir framan sitt lið til að kastið telst gilt. Ef boltinn kemur ekki við það svæði fær andstæðingurinn boltann.
- Bannað er að gefa frá sér öskur til að trufla andstæðinginn.
- Lið hefur 10.sekúndur til að skjóta, brot á því fær anstæðingurinn boltann.
- Leikmaður má bara taka tvö köst í röð.
- Ef varnarliðið ver boltann út af á liðsvæðinu fá þau boltann, nema þegar þau missa hann yfir á lendingarsvæið þá fær andstæðingurinn boltann. Þetta er andstætt ekta blindrabolta reglunum, en þetta er gert til að flýta fyrir leiknum og reyndist okkur betur.