Frístundaheimilin Kastali við Húsaskóla og Tígrisbær við Rimaskóla verða í samstarfi við sunddeild Fjölnis í sumarstarfinu. Í boði er að skrá börn sem eru að ljúka 1. og 2. bekk í sumarfrístund með sundnámskeiði sem stendur yfir í tvær vikur í senn. Börnin mæta daglega á sundnámskeið hjá Fjölni, sem hefst kl. 8:15 í Grafarvogslaug. Þar taka starfsmenn sundnámskeiðsins á móti þeim og fylgja í gegnum búningsklefa. Starfsfólk frá Kastala og Tígrisbæ sækir börnin í anddyri laugarinnar að sundnámskeiði loknu og fylgir þeim í frístundaheimilið.
Tímabil:
14. júní – 25. júní (9 dagar)
28. júní – 9. júlí (10 dagar)
9. ágúst – 20. ágúst (10 dagar)
Gjaldskrá:
10 dagar: 28.540 kr.
9 dagar: 25.720 kr.
Skráning hefst 27. apríl kl. 10:00 á: www.sumar.fristund.is