Vikan í Púgyn 9 – 13 október
Áður en ég kynna fyrir ykkur dagskrá vikunnar í Púgyn vil ég þakka öllum fyrir frábært Rósaball sem haldið var í Kelduskóla föstudaginn 6.október. Frábær stemning var á ballinu og var hegðun allra unglinga til fyrirmyndar.
Þriðjudagurinn 10.okt – Kelduskól Vík 19:00 – 22:00 : Hjartsláttur og Tie Dye
Tie Dye: Við ætlum að bjóða uppá Tie Dye sem hefst kl 20:00. Við munum selja hvíta boli á 500.kr en þau sem að koma með sína eigin boli fá að gera þetta frítt hjá okkur. Komdu og föndraðu með okkur geggjaðan tie Dye bol.
Hjartsláttur hefst kl 21:00 í matsalnum en þar er á ferðinni leikur þar sem 3 eru saman í liði og eiga að svara skemmtilegum spurningum saman. Spurningarnar eru í þessum dúr” hver sé líklegastur t.d að verða forseti íslands? og keppendur svara hver þeim finnst líklegast. Í þessum leik er stutt í hláturinn 🙂
Miðvikudagurinn 11.okt – Kelduskól Vík 19:00 – 22:00 : Klúbbakvöld
Fimmtudagurinn 12.okt : Kelduskóla Vík – 19:00 – 22:00 : Minuet to Win it
Leikurinn hefst kl 20:00 en hér er á ferðinni leikur í anda þáttanna minuet to win it. Skemmtilegur leikur þar sem allir geta látið ljós sitt skína.
Föstudagurinn 13.okt –Lokað