Þann 1.nóvember næstkomandi verður Félagsmiðstöðvadagurinn haldinn hátíðlegur um land allt. Félagsmiðstöðvar víða um land verða opnar fyrir gesti og gangandi þennan dag til þess að gefa áhugasömum færi á að kíkja þar inn, kynnast því sem þar fer fram, unglingunum í hverfinu og þeim viðfangsefnum sem þeir fást við.
Við hvetjum alla fjölskylduna til að kíkja saman í heimsókn til okkar í Fjörgyn.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Dagskrá:
19:00 – Húsið opnar
19:15 – Kynning frá formanni og varaformanni nemendaráðs Fjörgynjar
19:30 – Skrekksatriði Foldaskóla sýnt
20:00-21:00 – Bingó
21:00-22:00 – Félagsmiðstöðvasprell
Nýbakaðar vöfflur, kakó og kaffi verða í boði fyrir gesti og gangandi.