Heil og sæl öll sem eitt!
Þá er komið að síðustu vikunni fyrir jól hjá okkur í Fjörgyn!
Dagskráin vikuna 17. – 21. des lítur svona út:
Unglingarstig (8.-10. bekkur)
Mánudagurinn 17.12 – 19:30-22:00
Jóla-Minute to Win It!: 60 sekúndur virðast langur tími en ekki er allt sem sýnist í þessari jólaútgáfu af leiknum skemmtilega.
Þriðjudagurinn 18.12 – 19:30-22:00
Stúdíósmíði: Við ætlum að endurgera stúdíóið okkar og þið megið hjálpa til – passa bara að mæta í viðeigandi fötum því við munum mála og spasla!
Miðvikudagurinn 19.12 – 20:00-22:00
Jólaball: Jólaball Foldaskóla verður á sínum stað þetta árið og við í Fjörgyn ætlum svo sannarlega ekki að missa af því!
Fimmtudagurinn 20.12 – 13:00-16:30
Dagopnun: Þrátt fyrir jólafríið í Foldaskóla verður opið hjá okkur og við ætlum að eiga gott chill með jólaþema.
Föstudagurinn 21.12 – 19:30-01:00
LAN: Mætið með tölvu og keppnisskapið því við ætlum svoleiðis að missa okkur í leikjum!
10-12 ára starf
Mánudagurinn 17.12 – 16:30-18:00
Jóla-Minute to Win It!
Þriðjudagurinn 18.12 – 17:00-18:30
Jóla-Minute to Win It!
Föstudagurinn 21.12 – 16:30-18:00
Jólaferð 10-12 ára!
Hlökkum til að sjá ykkur öll þessa vikuna!
– Starfsfólk Fjörgynjar