Heil og sæl!
Þá er komið að síðustu viku starfsins í Fjörgyn þetta skólaárið, en örvæntið ei því sumarstarfið hefst á föstudaginn!
Dagskráin vikuna 3.-7. júní lítur svona út:
Unglingarstig (8.-10. bekkur)
Mánudagurinn 3.6 – 19:30-22:00
Haffakvöld: Síðasta starfsmannakvöldið þessa önnina og Haffi okkar ætlar að sjá fyrir skemmtuninni!
Þriðjudagurinn 4.6 – 19:30-22:00
Smiðja: Auglýst síðar
Miðvikudagurinn 5.6 – 19:30-22:00
Sumarsnilld: Við ætlum að skemmta okkur eins og okkur einum er lagið á þessari síðustu opnun Fjörgynjar skólaárið 2018-2019!
Föstudagurinn 7.6 – 19:30-22:50
SUMARSTARF HEFST – Sameiginleg sumarbomba: Fyrsta sameiginlega sumarbomban verður í Fjörgyn!
ATH: Breytingar á 10-12 ára starfinu okkar 2019 eru að nú ætlum við að hafa almennar opnanir fyrir 5.-7. bekk á mánudögum, íþróttasal á þriðjudögum fyrir 5.-7. bekk, og á miðvikudögum verða 5.-6. bekkjaklúbbar.
10-12 ára starf
Mánudagurinn 3.6 – 15:00-17:00
Opið hús!
Þriðjudagurinn 4.6 – 17:00-18:30
Íþróttasalur / Sparkvöllur!
Miðvikudagurinn 5.6 – 15:00-17:00
Brjóstsykursgerð – Frísmiðja!
Hlökkum til að sjá ykkur öll þessa vikuna!
– Starfsfólk Fjörgynjar