Þann 13.nóvember verður félagsmiðstöðvadagurinn haldinn hátíðlegur. Félagsmiðstöðvadagurinn er tækifæri fyrir alla sem hafa áhuga á að koma og skoða félagsmiðstöðina, hvort sem um er að ræða foreldra, systkini eða einfaldlega áhugasama, unga sem aldna. Starfsmenn félagsmiðstöðvarinnar verða á svæðinu og geta svarað öllum þeim spurningum sem kunna að brenna á gestunum. Hefðbundnar opnanir falla niður þann dag en við í Púgyn viljum hvetja alla eindregið til að nýta tækifærið, mæta í félagsmiðstöðina og kynnast starfseminni sem þar fer fram.
Húsið verður opið frá kl. 19:00 – 21:30 og dagskrá kvöldsins er hér að neðan.
– Kynning á starfsemi félagsmiðstöðvarinnar
– Kynning frá nemendaráði
– Fjölskyldu spurningakeppni
– Pizza og gos til sölu
– Blindrabolti í íþróttasalnum
– Fílablak og margra- manna borðtennis (nýjungar hjá okkur í Púgyn)
– Opið hús – spil, pool, borðtennis, ps4, pógó og annað sem félagsmiðstöðin býður uppá á opnunum.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Kær kveðja,
Starfsfólk Púgyn