í flokknum: Dregyn, Félagsmiðstöðvar (10-16 ára), Gufunesbær

Góðan daginn og eru þið ekki ágætlega hress á þessum fallega mánudegi?

Við í Dregyn erum spennt fyrir komandi viku. Hér neðar í fréttinni munum við segja ykkur hvað er framundan. En fyrst langar okkur að þakka öllu 87 unglingunum sem komu á vökunótt. Þau voru öll til fyrirmyndar og við erum nokkuð viss um að þau hafi öll skemmt sér konunglega vel. Við starfsfólkið skemmtum okkur vel og erum svo ótrúlega ánægð að allt hafi gengið eins og í sögu. Takk elsku þið, þið eruð bestu unglingarnir!

Komandi vika í Dregyn hljómar svona:

Þriðjudagur
10-12 ára: 6. bekkjaklúbbur, síðasti hittingurinn.
Unglingar: Smiðjukvöld. Við munum bjóða upp á nokkrar smiðjur sem þau geta tekið þátt í. Það mun kosta frá 200-500 kr í hverja smiðju. Gefum út leyfisbréf fyrir Hryllingsmyndakvöldið fim 26.sept.

Miðvikudagur:
Unglingar: Frá 8:30-12:30 verðum við á skrifst0funni okkar í Vættaskóla Engjum að gefa út leyfisbréf fyrir Hryllingsmyndakvöldið. Síðasti séns að fá leyfisbréf.

Fimmtudagur
10-12 ára:
Halloween ball. Sameiginlegt ball fyrir alla krakka í Grafarvoginum.
Það verður haldið hér í Vættaskóla-Borgum. Ballið byrjar kl 17:00-18:30. Það kostar 100 kr. inn á ballið ef þú mætir í búning, annars 200  kr. Krakkarnir mega koma með gos, nammi eða snakk. Hentur stranglega bannaðar.

 

 

 

Unglingar: Hryllingsmyndakvöld. Ef að þinn unglingur vill fá að horfa á myndina, þá verður hann að vera búinn að fá leyfisbréf frá okkur sem er kvittað af þér (foreldri / forráðamanni) og skila til okkar sama kvöld. Ef að unglingurinn þinn vill ekki horfa á myndina þá er það í fínu lagi. Það er ekki skylda að horfa á myndina, það er opið hús á meðan.

 

 

Okkur langar einnig að byrja að minnast á Félagsmiðstöðvardaginn sem verður haldinn hátíðlegur miðvikudaginn 1.desember. Við viljum endilega hvetja alla foreldra að mæta með barninu/unglinginum sínum og sjá hversu frábær félagsmiðstöð Dregyn er. Það verður létt dagskrá og veitingar. Við munum senda póst og skrifa grein um þennan dag þegar nær dregur.

Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt