Frístundamiðstöðin Gufunesbær er í hópi fyrirmyndarstofnana Reykjavíkurborgar árið 2020 í viðhorfskönnun starfmanna Sameykis, stéttarfélags í almannaþjónustu.
Það er ánægjulegt að fá þessa viðurkenningu sem staðfestir að hjá Gufunesbæ er verið að bjóða upp á gott og faglegt frístundastarf leitt af starfsfólki sem er ánægt og líður vel í vinnu. Okkar markmið er að sjálfsögðu að viðhalda því góða starfi sem Gufunesbær stendur fyrir. Viðhorfskannanir sem þessar eru vísbending eða stöðutaka á því hvort starfsemin sé á réttum stað, starfsfólk ánægt og stjórnun árangursrík. Jafnframt gefa viðhorfskannanir tækifæri til að rýna í þá þætti sem má bæta og setja þarf í ferli til að gera starfið enn betra.
Gufunesbær vill nota tækifærið og senda kærar kveðjur til allra starfsmanna sem starfa í framlínu hjá okkur núna á þessum sérstöku tímum. Þið eigið þennan heiður sannarlega skilið.