Vetrarfrí í Grafarvogi
Í vetrarfríinu gefst íbúum Grafarvogs tækifæri á að taka þátt í rafrænum ratleikjum sem búið er að setja upp á nokkrum stöðum. Ratleikirnir eru tileinkaðir fjölskyldum og þá sérstaklega krökkum á grunnskólaaldri. Leikjunum er skipt niður í eftirfarandi hverfi: Staðahverfi, Borga-, Víkur- og Engjahverfi, Rimahverfi, Folda- og Húsahverfi og síðan Hamrahverfi. Því ættu flestir að finna leik í sínu nærumhverfi. Markmið ratleikjanna er að finna punkta sem sýndir eru á yfirlitskorti og leysa síðan verkefni á hverjum stað.